Ok hata þessar helvítis fyrirsagnir! veit aldrei hvað ég á að skrifa þar!

en þar sem það bloggar aldrei neinn hérna og ég er ekki frá því að það sé enn fólk sem álpast hérna inn á, þá ákvað ég að koma með eitt blogg um daginn og veginn

Vegurinn er ágætur þessa dagana (er sko heima í sveit) hann er skárri en oft áður skal ég segja ykkur

nóg um hann

dagurinn er búin að vera ágætur, fór í vinnu í morgun! þurfti að vakna klukkan 7

það var svoldið erfitt! því að ég þurfti síðan að mæta niður í borgarnes í búrekstrardeildina þar klukkan 8 til að byrja að vinna

Þetta er ágætis vinna, svoldið langir dagar en hey ekki kvarta ég! það er ekki hver sem er sem fær að smíða traktor í vinnunni sinni
Ég er ekki frá því að það sé allt of mikið af hlutum sem ég get hlakkað til! annað kvöld ætlum við saman nokkrar á Sálina á players! allir velkomnir að slást í hópinn, hafið bara samband

svo er næst útskriftin mín, þótt að ég sé reyndar ekkert eitthvað úber spennt fyrir henni en what ever

svo eru ég og Helga að fara á þjóðhátíð! og ætlum sko ekki að missa af neinu

við ætlum að fara klukkan 12 á fimtudeginum

en svo er annað mál hvenær við komum heim, því að það er víst allt upppantað heim í Herjólfi á mánudeginum

en það reddast eins og alltaf
Þegar það er búið er ég bara að fljúga af stað út í heim

alla þessa leið til Danmerkur
En jæja nú er mamma farin að reka á eftir mér og vill komast í tölvuna, svo ég segi þetta gott í bili

skora á fleiri en Helgu að blogga

reynum að endurvekja þessa síðu eitthvað
kveðja úr sveitinni Unnur